Bænahúsið fær góðan gest.
Paul Gitwaza sem kemur frá Kongó og stofnar kirkju í Kigali Rúanda 1999 og er sú kirkja í dag með um 10-15 þúsund meðlimi. En hann hefur ekki setið auðum höndum, því hann hefur stofnað kirkjur um alla Afríku. Einnig hefur hann stofnað kirkjur í USA, Danmörku, Englandi, Frakklandi og Belgíu. Þetta er magnaður bróðir sem gaman er að hlusta á og hann er virtur bæði heima fyrir og út um heim. Var meðal annars einn af þeim sem kom á samkomu á íþróttavelli í Rúanda til að sætta Hútúa og Tútsa eftir þjóðarmorðin 1994 í Rúanda.
Heimasíða með upplýsingum um starf Paul Gitwaza: www.authenticword.org
Samkomudagskrá:
Föstudag 27. okt. 2006 kl. 20
Samkoma í Vonarhöfn – Suðurgötu Hafnarfirði, bak við Hafnarfjarðarkirkju við hliðina á Bónusvídeó.
Laugardagur 28. okt. 2006 kl. 14 – 17
Námskeið “Endurreisn tjaldbúð Davíðs” í Bænarhúsinu – Sama húsi og Ekron Smiðjuvegi 4b, Kópavogi.
Sunnudagur 29. okt. 2006 kl. 11 Samkoma í Hvítasunnukirkjunni Keflavík.
Sunnudagur 29. okt. 2006 kl. 14 Samkoma í Kefas.
« til baka
|