Bænahúsið var með námskeið helgina 2 – 4 nóv. 2007 “Bænahús dag og nótt á Íslandi” Kennarar voru: Greg Burnett frá ZHOP Bænahúsinu í Charlotte, USA og Ian Nicholson forstöðumaður frá Guildford, Englandi sem hefur tekið þátt í því að bænahús hafa verið stofnuð víða í Evrópu. Einnig kenndi Jake Farrell lofgjörðarleiðtogi eina kennslustund. Við fengum 15 gesti frá fjórum bænahúsum; Tveimur bænahúsum frá USA, Seattle, og Charlotte, og tveimur bænahúsum frá Englandi, London og Guildford. Það voru tveir lofgjörðarleiðtogar í hópnum, fiðluleikari, trommuleikari, bassaleikari og gítarleikari. Lofgjörðin var alveg frábær; þau sungu og spiluðu í spámannlegum anda, en Herdís Hallvarðsdóttir spilaði með þeim að sérstakri snilld. Það var bænalína og mikið spámannlegt flæði, sumir spádómarnir voru sungnir út yfir viðkomandi. Við erum yfir okkur blessuð eftir þessa heimsókn. Sannarlega hefur Ísland fengið skýrari sýn um að reisa upp bænahús á Íslandi. Bænahús með lofgjörð til að lyfta upp nafni Drottins með söng, tónlist, dansi, og bæn. Lofgjörð með spámannlegum anda, með mismunandi hljóðfærum. Einnig að syngja út spámannlegt orð. Þegar við hugleiðum orðið er frábært að syngja, tala, skrifa og biðja ritninguna. Við það að hugleiða orðið fáum við opinberun á ritningastaðnum sem við förum með aftur og aftur. Þegar hið spámannlega fær að flæða á bænastund, kemur ferskleiki, nýtt líf, opinberun og gleði. Einnig þurfum við að hafa REMA-Orð predikað, sem kemur sem opinberun frá hásæti Guðs fyrir okkur á réttum tíma. En við biðjum Guð og treystum því að hann muni reisa bænahúsið fullkomnlega eins og hann vill að það sé.
|