Framúrskarandi kristinn Rómverjabréfið.12:2 Við getum verið þrítugföld, sextugföld eða hundraðföld í að bera ávöxt. Sumir láta nægja að bera einhvern ávöxt og dvelja alla sína tíð í forgarðinum eða gefa um 30 % af hjarta sínu til Drottins. Aðrir vilja meira og fara inní hið heilaga og gefa hjarta sitt 60 %. En brúðurin fer alla leið inn í hið allra heilagasta og gefur sig 100 %. Það er enginn maður sem vill brúður sem gefst honum ekki alveg, eins er með Drottinn okkar. Markúsarguðspjall.4:20 Í forgarðinum er gott að vera og það eru ekki gerðar miklar kröfur til þín og þetta er eins og leikvöllur þar sem holdið hefur um 70 % yfirráð. En í hinu heilaga hefur hinn kristni einstaklingur gefið meira af hjarta sínu til konungsins. Hann fær opinberanir frá Guði, dýpra bænalíf og styrk úr orði Guðs. Hann lætur anda Guðs og orð Guðs ráða oftar í lífi sínu heldur en satan, holdið eða heimsandann. En brúðurin lætur sér ekki nægja að vera eins og hjákona, heldur vill hún vera algjör. Í auðmýkt skríður hún inn í hið allra heilagasta, þar sem dýrð Guðs er og sterk nærvera Drottins. Þar talar Drottinn beint til sinnar heitt elskuðu brúði. Við getum verið góðir kristnir menn, jafnvel valið að vera frábærir kristnir menn, en Drottinn er að kalla okkur til að vera framúrskarandi kristna menn. 1.Pétursbréf.5:10 Ef við viljum verða brúður Drottins og vera framúrskarandi kristnir, þá þurfum við að ganga í gengum eldreynslur. Reynslur styrkja okkur og gefa okkur dýpri rætur í Kristi ef við veljum rétt í öllum kringumstæðum. Ef við ætlum að klífa hæsta fjall heims, þá þarf reynslu til þess. Sumir tindar hafa tekið fleiri líf en sá fjöldi sem hefur náð toppnum og er Mount Everest ekki hættulegasta fjallið. Því ofar sem við förum í fjallgöngunni verður kaldara, veðrasamara, minna súrefni og útsýni getur spillst á örskammri stundu. Þá þarf að treysta á góðan búnað og hafa mikla reynslu af fjallaklifri. Eins er þegar við klífum hið andlega Síon fjall Guð, þá þurfum við að læra að treysta algjörlega á leiðsögn Heilags Anda til að ná toppnum og verða hans brúður. En sú þjáning og áreynsla við að komast alla leið er ekkert miðað við þá dýrð sem okkar himneski faðir hefur fyrirbúið þeim sem gefast ekki upp og sigra. Opinberunarbókin.3:21 Við getum náð markinu, því það er meira í okkur heldur en við vitum um. Þegar við förum í gegnum eldlega reynslu, þá brennur hismið burt og gull, silfur og dýrir steinar opinberast. Megi þetta hvetja okkur til að gefast ekki upp á hinni andlegri göngu. |