Eyðimörkin Matteusarguðspjall.4:1 Það var andinn sem knúði Jesú út í eyðimörkina í 40 daga. Þetta var tími reynslu, eins og þegar Ísraelsmenn voru 40 ár í eyðimörkinni. Talan fjörutíu er mynd uppá reynslu. En þegar Jesús kom út úr eyðimörkinni var hann andlega sterkur. Jóhannes skírari hafðist við út í eyðimörkinni og kom þaðan sterkur, fullur af orði Guðs. Ísraelsmenn komu sterkir hermenn út úr eyðimörkinni og tóku þá að berjast við þjóðirnar í Kanaanslandi. Eyðimörkin er til þess að auka undirstöðu okkar, leiðrétta okkur, byggja upp nafn Drottins í okkur og gjöra okkur að góðri fyrirmynd. Þegar andinn leiðir okkur út í eyðimörkina, þá er hann með áhuga á að snerta hjarta okkar. 5.Mósebók.8:2 Eyðimörkin sker í burt það sem á ekki að vera og Drottinn nær athygli okkar. Þetta er staður einangrunar, aðskilnaðar og til að læra að treysta orðum Guðs. Á þessum stað talar Guð oft orð sem við skiljum ekki og eins er með kringumstæður sem við skiljum ekki tilganginn með. En Guð gerir ekkert án tilgangs og hann gerir ekki mistök. Margir verða hræddir í eyðimörkinni að fá ekki næga fæðslu eða það sem við þörfnumst. En þarna lærum við að treysta Guði og gjöra þakkir í öllum kringumstæðum. Við sjáum í Matteusarguðspjalli 14 kafla að Jesús fæddi 5000 manns í eyðimörk með aðeins 5 brauðum og 2 fiskum, en hann þakkaði fyrir gjafir Guðs. Þannig að við getum vaxið og fengið næga fæðslu í eldreynslum. Jesaja.48:21 Brúðurin í ljóðaljóðunum hafði farið inná bænastaðinn sem nefndur er heiði. Hebreska orðið heiði (Midbar) merkir eyðimörk sem kemur af orðinu Dabar sem er orð sem Guð talar og við skiljum ekki. Leyndardómurinn er að hlýða jafnvel þótt við skiljum ekki orð hins lifanda Guðs. Það var einmitt það sem brúðurin gerði, hlustaði og hlýddi orðum hans. Ljóðaljóðin.3:6-8 Síðan þegar brúðurin var búin að vera í Midbar eyðimörkinni, á stað einangrunar og í nánu bænasamfélagi við hann. Þá kom hún sterk út úr eyðimörkinni, angandi af auðmýkt og nafni hans. Hún var tilbúin að berjast og var óttalaus, því fullkominn elska rekur út óttann. Næst þegar dalur eða eyðimörk kemur í líf okkar skulum við muna að Guð er að tala og þetta er ekki tilviljun sem er að gerast í lífum okkar. Þegar Guð hefur leitt okkur í gegnum einn eldinn enn, þá komum við sterkari og enn ástfangnari af brúðguma okkar Drottni Jesú Kristi. |