HANN ELSKAR OKKUR Það er sumt fólk sem enginn vill hafa með að gera og það fólk fær höfnun. Þetta veldur særindum og oft djúpu sári. Það getur verið maki þinn sem hafnar þér, faðir þinn, vinur, móðir, leiðtogi eða einhver annar. Sálmarnir.142:5 Oft slitnar upp úr hjónabandi, fjölskyldum og vináttu. Sumir ná góðum árangri í að mistakast aftur og aftur. Fólk snýr við okkur baki, eins og ekkert sé. Sálmarnir 138:6 Samt elskar Drottinn okkur og áður en ég var getinn í móðurkviði, þá elskaði hann mig. Hann gleymir okkur aldrei eða yfirgefur okkur. Hebreabréfið.4:14-16 Drottinn elskar að blessa okkur, þó við eigum það ekki skilið. Hann þráir okkur svo mikið og við þurfum ekki að vinna fyrir kærleika Guðs. Við erum sek, en við getum samt komið að hásæti náðarinnar og beðið um miskunn. Við biðjum ekki um réttlæti ef við erum sek. Hann þráir að sýkna okkur og gefa okkur nýtt upphaf. Við sjáum hve Drottinn er kærleiksríkur í sögunni um geðveika manninn í Mark. 5 kafla. Jesús er að kenna allan daginn við Galelíuvatnið, en um kvöldið sagði hann við lærisveina sína; förum yfir um vatnið. Þeir voru alla nóttina að berjast í stormi yfir Galelíuvatn og þeir enduðu með því að vekja hann því þeir héldu að skipið myndi farast. Þegar Jesús kom yfir vatnið kom á móti honum maður með óhreinan anda, sem hafðist við í gröfunum og á fjöllunum. Það hafði verið reynt að binda hann, jafnvel með hlekkjum, en hann sleit sig jafnan lausan. Þetta var eini maðurinn sem Jesú þjónaði til og rak illu andana í 2000 svín sem fóru fram af hömrum í vatnið og drukknuðu. Fólkið í héraðinu bað Jesú að fara burt. Jesús kom aðeins til að leysa þennan geðveika mann sem var haldinn hersing öndum. Síðan sagði Jesús manninum að fara heim og gefa Guði dýrðina. Að því loknu sagði Jesú við lærisveinanna að þeir skyldum fara aftur yfir um vatnið. Ef Jesú kom aðeins fyrir hróp og bæn þessa eina manns, hvað gerir hann fyrir okkur. |