Jessabel

Opinberun Jóh. 2:20.
En það hef ég á móti þér, að þú líður Jessabel, konuna, sem segir sjálfa sig vera spákonu og kennir þjónum mínum og afvegaleiðir þá til að drýgja hór og eta kjöt helgað skurðgoðum.

Jessabel þýðir án þess að búa saman. Þessi andi getur ekki búið með öðrum nema að fá að stjórna. Þessi andi fær oft fótfestu í konum sem eru bitrar út í menn vegna vanrækslu eða misbeitingu á valdi. Jessabel þráir að ríkja yfir öðrum og er bak við konu sem opinberlega auðmýkir eiginmann sinn með tungu sinni og stýrir honum svo með ótta við að vera auðmýktur opinberlega.
Jessabel leitar í lofgjörðar fólki sem er með metnað og vill verða ríkjandi. Þessi andi getur líka ráðist á Pastorinn sem mun verða ráðríkur og ósveiganlegur í stjórn sinni á kirkjunni. Slíkir Pastorar munu verða einmanna og einangraðir frá félagsskap og öðrum Pastorum. Þeir munu verða daðurgjarnir og eiga sérstakt samband við eina eða fleiri konur í samfélaginu.
Kirkjuleiðtogar eiga að hafa varan á sér, því þessi andi leitar eftir því að komast í leiðtoga stöðu. Jesús segir um Jessabel, hún kallar sig spákonu.
Þannig að bænaleiðtogar, lofgjörðarleiðtogar, Pastorar og aðrir þjónar kirkjunnar eru skotskífa Jessabel. Því þarf bænahóp til að berjast gegn þessum anda.
Verstu óvinir Jessabel eru spámenn, því þeir tala gegn henni og að söfnuður sem elskar að gera iðrun. Jessabel hatar auðmýkt og bænir, því bænin bindur hana. Þegar við biðjum með undirgefnu hjarta, er það eins að hestur Jehú sem treður hana niður. Hún hatar spámannsorð og hið talaða orð Guðs. Einnig hatar hún náð Guðs og að hann notar hina smáu til að taka hana niður. Hún hatar heilagleika og hreinleika hjartans sem kom frá Guði. Ef við líðum þennan anda, þá kemur sjúkdómar og dauði.
Elía er óvinur Jessabel og það er stríð milli þeirra. Jessabel er óskammfeilinn og full af töfrum og orðum blekkingar. Elía er djarfur spámaður og fullur af orði Guðs. Það var á þriðja ári þurrksins í Ísrael sem Elía lét Akab sjá sig að boði Drottins og skoraði á spámenn Baals. Elía var faðir margra spámannssveina sem Jessabel hafði drepið og var hann síðastur spámanna þegar hann skoraði 450 Baalspámenn og 400 Aséruspámenn á hólm. Þessir 850 falsspámenn, satansprestar átu við borð Jessabel.
I. Kon. 18:19.
Þegar Ahab sá Elía kallaði hann: “Ert þú þar, skaðvaldur Ísraels?”.
Andi Jessabel sér alltaf sig rétta og þá sem þjóna Guði í anda og sannleika sem ranga.
Konungurinn Ahab eiginmaður Jessabel sendi út boð til allra Ísraelsmanna og spámanna Jessabels að mæta á Karmelfjalli.
Áskorunin ver einföld: hvert lið átti að setja uxa á altar. Elía sagði: “Ákallið síðan nafn yðar Guðs, en ég mun ákalla nafn Drottins. Sá guð, sem svarar með eldi, er hinn sanni Guð.” I. Kon. 18:24.
Sex klukkustundum síðar hafa djöflaprestarnir ekki getað framleitt neinn eld og Elía fer að hæða þá. Kallið hárri röddu, því að hann er guð. Hann er hugsi, eða hefir brugðið sér burt eða er farinn í ferð. Ef til vill er hann sofnaður og verður fyrst að vakna.
Baalspámennirnir hrópuðu og ristu sig með sinnsprettum.
Síðdegis gekk Elía fram og hrópaði til Drottins: Bænheyr mig, Drottinn! Bænheyr mig. Þá féll eldur Drottins niður og eyddi brennifórninni, viðnum, steinunum og grassverðinum, og vatnið í skurðinum (3 x 4 skjólur) þurrkaði hann einnig upp.
Eftir þessa vitjun Guðs tók Elía spámennina og drap þá við Kísonlæk.
Andavald réðst á Elía og setti ótta í hjarta hans. Jessabel hótaði að fara með Elía eins og hann hafði farið með spámenn Baals. Hann flúði út í eyðimörkina og settist undir gýfilrunna og óskaði sér dauða. I. Kon. 19:1-4.
Andi Jessabel dregur kjarkinn úr fólki Guðs, auðvitað átti Elía að halda áfram og sjá til þess að Jessabel yrði banað.
Lúk. 1:17. Áður en Jesús hóf sína þjónustu, kom fram maður sem Jóhannes hét í krafti og anda Elía.
Matt. 17:11-13. Eins og Elía kom Jóhannes með iðrunarboðskap og talaði gegn synd. Sama hvort um er að ræða háa eða lága. Jóhannes benti á hórdómslíferni Heródesar og Heródíasar kona Filippusar bróður Heródesar. Mark. 6:16-25. Það sem Jessabel vildi gera við Elía gerði Heródíasar við Jóhannes skírara.

Mal. 4:5-6.
5. Sjá, ég sendi yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.
6. Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að ég komi ekki og ljósti landið banni.

Orð Guðs talar um að Elía komi á síðustu dögum og muni endurreisa allt. Drottinn er að reisa upp andans fyllta einstaklinga konur og karla í anda Elía til að undirbúa komu Drottins.
Andi Elía mun magnast og andi Jessabel mun einnig eflast. Hórdómsandi, galdrar, óskammfeilin rödd sem hafnar höfðingjadómi Drottins og gort um uppreisn hennar í femínistabylgjunni.
Við sjáum hvernig Guð í gamla textamentinu eyddi Jessabel. Jehú nýkrýndur konungur yfir Ísrael var sendur með orð frá Elísa eftirmanni Elía til að framfylgja loforði Guðs. Jehú og menn hans fóru á vögnum sínum til Jesreel og þegar þeir hittu konung Júda Ahasía og konung Ísrael Jóram, og spurði Jóram ferðu með friði.
II. Kon. 9:22.
Jehú svaraði: “Hvað er um frið að ræða, meðan Jessabel móðir þín heldur áfram með hórdóm sinn og hina margvíslegu töfra sína.”
Jehú drap þá báða. Þegar hann kom til Jesreel, hafði Jessabel smurt sig í kringum augun og skrýddi höfuð sitt.
Þegar Jessabel opinberast er hún smjaðursleg og jafnvel biðjandi (grátandi) um vægð. Við þurfum að hafa anda Elía sem var í Jehú og sýna þeim gæsku sem eru í ánauð Jessabel en henni verður enginn miskunn sýnd. Troðum hana undir hesti trúarinnar í bæninni og gleðihljómnum í lofgjörðinni. Við sættum okkur ekki við falskan frið, enginn friður fyrr en Jessabel er dauð. Það voru geldingarnir sem hentu Jessabel niður svo Jehú gat troðið hana undir hófum hests síns. Hebreska orðið kasta þýðir; að hætta, stöðva, láta staðar numið, að láta einhvern í friði, gefa upp, fyrirgefa, útrás, steypa af stóli og hrista. Geldingarnir eru þrælar þessa anda og þeir áttu fyrsta skrefið. Rísum upp sem sterkur her og berjumst gegn þessum viðbjóðslega hórdómsanda Jessabel og upprætum öll vígi hennar.
Bíleam kom með anda Jessabel og reyndi að spá bölbænum yfir Ísrael fyrir Balak gegn borgun. Reyndi þrisvar en ávalt kom blessun, þá ráðlagði Bíleam Móabítum að senda konur sínar til að tæla Ísraelsmenn í hórdóm og skurðgoðadýrkun. Ásókn í laun er hinn rétti andi Jessabel. Þá kom plága yfir Ísraelsmenn sem staðnaði ekki fyrr en Pínehas maður með anda Elía rak spjót í gegnum Ísraelsmann og Mídíanska konu sem voru í hórdómi.
Söfnuðir sem eru í trúboði til þjóðanna og hafa vald yfir þjóðunum eru undir árás Jessabel. Einnig er það kirkja sem hefur sýnilega dýrð vegna innri helgunar og hefur gjöf lækningar sterklega í sinni þjónustu.
Við þurfum að biðja H. A. Að opinbera okkur hvar við erum að umbera þessa illu anda. Það þarf gungu eins og Ahab til að umbera Jessabel og eðli hans er að gefa vald sitt til Jessabel. Ahab var konungur en Jessabel réði ríkjum. Þegar Jessabel tekur völdin mun koma þurrkur og hungursneið, framtakssemin verður enginn. Orðið sem predikað er verður bitlaust og andlaust.
Jessabel er illur andi sem stjórnar öðrum illum öndum, eins og kynvilluöndum. Allt verður umborið í saurlifnaði. Kirkjan verður höfuðlaus og það er engin raunveruleg stjórnun. Sýnin er heldur ekki nein eða þokukennd.
Þetta er andavald sem við þurfum að snúa saman og berjast gegn í einum huga. Lofgjörð á að vera hluti af hermennsku gegn Jessabel.
Jessabel andi er vörn sem margar konur taka fagnandi vegna þess að við höfum lifað í karlrembu veröld. Með því kemur uppreisn sem gerir þær harðar og kærleikslausar gegn spilltu valdi karla. Þær finna styrk í því að verða eins og andstæðingurinn, harðar, töff og kærleikslausar. Það sem þær hafa hatað í mönnum er komið í þær. En mótefnið gegn Jessabel er auðmýkt Krists.
Jessabel er öfugugga andi sem reynir að breyta konum í karla og körlum í konur.
En munum að kona sem er vanrækt og misboðið af eiginmanni sínum er bráð fyrir Jessabel. Vörnin er kærleikurinn. I. Jóh. 4:18. Fullkomin elska rekur út óttann.
En munum að einstaklingur haldinn þessum anda er í mikilli kvöl.
Til þess að meðtaka anda Elía og ferskan vind frá andardrætti Guðs þurfum við að gjöra iðrun. Matt. 3:1-2. Jóhannes skírari kemur í anda Elía og er undanfari Drottins og hann predikar: Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd.
Alltaf þegar nýtt vín kemur, þurfum við að undirbúa hjörtu okkar til að meðtaka. Gamli vínbelgurinn dugir ekki lengur, hann myndi springa og við ekki halda þeirri blessun sem Guð vill gefa okkur.

Lúk. 5:37-39.
37. Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður, en belgirnir ónýtast.
38. Nýtt vín ber að láta á nýja belgi.
39. Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: Hið gamla er gott.

Til þess að útbúa nýjan vínbelg þarf blóð að renna og nýr vínbelgur getur þanist út undan hinu fríska og ólgandi nýja víni H. A. Frá hástól Drottins. Við erum tilbúin að leyfa H. A. Að stjórna og móta okkur.
Hið gamla vín er fortíðin, útslitið og antik. Við höldum okkar stöðu og það eru engar breytingar. Við höfum stjórn á þessu öllu eða það höldum við.
Það er auðveltara að hafa engar breytingar. En Guð er ekki Guð kyrrstöðunnar eða dauðans. Skýið og eldurinn heldur áfram. Kirkjudeildir eru sönnun þess að það hefur verið stoppað og sagt nú er þetta fínt, byggjum minnisvarða um þessa síðustu opinberun sem Guð gaf okkur. Eðli Drottins er að opinbera sig fyrir manninum, það er lína ofan á línu, lag ofan á lag. Opinberun er ekki uppreisn. Biðjum Guð um ferska opinberun frá hástóli Hans og biðjum hann um djörfun Elía til að fara gegn straumnum. Nú er tími Elía til að rísa upp gegn ofríki Jessabel og opinbera mátt Drottins. Drottinn blessi þig og gefi þér náð til að vaxa í kærleika og miskunn Hans.

 « til baka