Endurreisn Mulenge

Endurreisnarmót í Minembwe í Austur Kongó. Minembwe er eitt af 20 þorpum í Mulenge héraði sem er í Austur Kongó. Á Mulenge búa um 250.000 manns sem eiga rætur í Tútsa ættbálk frá Rúanda og Búrúndí. Þegar landamæri þessara landa lokuðust varð þessi hirðingahópur innlyksa í Kongó. Þeir hafa verið ofsóttir, verið neitað um ríkisborgararéttindi og lent á milli í stríðinu sem hefur geisað síðustu 10 ár í Austur Kongó. Þeir hafa ekki rafmagn, vegi, samskiptatæki eða aðra tækni.

Þeir höfðu andatrú eingöngu þar til ungur drengur frelsaðist 1937, en hans nafn var Kajabika. En baráttan við andaverur var svo mikil að á 13 árum frelsast aðeins tvær manneskjur. Um 1950 braust út vakning eftir að Kajabika var daga og nætur í skóginum að biðja fyrir fólkinu sínu. Þarna er þjóðflokkur sem er mjög einangraður fjarri truflun heimsins eins og sjónvarpi, útvarpi, bílum, kvikmyndahúsum, börum og skemmtistöðum. Ellefu árum síðar varð bakslag vegna þess að kirkjudeildir sem komu inn á svæðið fóru að slást um fólkið. Þannig að í dag hefur andatrúin náð að hafa yfirtökin. Kirkjurnar á svæðinu eru vonlitlar og eru starfandi í veikleika og ótta.


Svona líta húsin út sem þeir búa í á Mulenge svæðinu í Austur Kongó.

Fólkið er andlega ráðvillt og dýrð Guðs hefur vikið frá þeim. Jafnframt þess að vera andlega fátæk hafa þau verið fórnarlömb stríðins í Kongó. Líf margra hefur verið lagt í rúst, margir hafa misst ættingja, munaðarleysingjar, ekkjur og fleiri eftirlifandi eru HIV smitaðir, með berkla, augn sjúkdóma og margt annað sem þrjáir þá líkamlega.
Það er geysilegt hróp um andlega og náttúrulega hjálp. Drottinn hefur lagt þessa byrði á nokkra einstaklinga að endurreisa Mulenge og spámenn hafa talað um að nú sé tíminn að leiða fólkið í Mulenge aftur til Drottins. Þeir sem standa að þessu er Kajabika Foundation í Kongó, Zion Temple í Rúanda og Vonin trúboðsstarf á Íslandi.

Það er ráðgert að þetta verkefni taki 3 til 5 ár. Markmiðið er að breyta andlega andrúmsloftinu yfir Mulenge og leiða fólkið aftur til Drottins. Hjálpa þeim með menntun, heilbrigðisþjónustu og annað sem lítur að náttúrulegum frum þörfum. Aðstoða munaðarleysingja, ekkjur og aðra sem þurfa hjálpar við.

Það verður byrjað í júlí 2008 með Endurreisnarmót dagana 22-27 júlí. Áætlaður fjöldi mótsgesta verður um 50.000. Áætlaður kostnaður er um 6.000.000 kr. sem er að mestu vegna þess að mótsgestum sem koma sumir langt að verður gefið að borða þessa viku sem mótið verður. Síðan verður þessu fylgt áfram með frekari hjálp á komandi mánuðum og árum.

Við viljum gefa þér tækifæri að vera með í verkinu og sá fjárhagslega í þetta verkefni. Hvert sáðkorn fjármuna skiptir máli fyrir Mulenge hérað í Kongó og getur skipt sköpun fyrir framtíð íbúa landsins.

Styrktarreikningur fyrir trúboð Vonarinnar:
Banki: 135-05-071115
Kt. 460406-1370

« til baka