Múrar Sannleikans Áður en Jesús kemur aftur mun hann endurreisa kirkju sína fullkomlega. Við lifum á síðustu tímum og við erum síðasta kynslóðin. Hin síðari dýrð kirkjunnar verður meiri en hin fyrri. Á þriðja degi í brúðkaupinu í Kana gjörði Jesús kraftaverk, hann breytti vatni í vín og menn sögðu að það væri óvanalegt að besta vínið kæmi síðast. En við erum á þriðja degi, þ. e. þriðja árþúsundið í náðartímabilinu og við þurfum að útbúa nýjan vínbelg í andanum fyrir hið nýja vín sem Drottinn ætlar að útdeila með börnum sínum. 21 öld verður eins og fyrsta öld nema bara 7 sinnum meiri dýrð sjá Jesaja 30:26 um opinberun síðustu daga. Menn og konur munu rísa upp á síðustu dögum í krafti Elía, og Jóhannes skírara til að undirbúa lýð Drottins fyrir komu hans sjá Malakí 4:5. Í dag er ekki nóg að berjast einn heldur þurfum við að berjast í einingu gegn afli myrkursins. Andi antikrists er að magnast með hverju árinu sem líður. Nehemía fékk leyfi frá Babelskonungi til að endurreisa múra Jerúsalem. Það var ekki átakalaust, Ísraelsmenn þurftu að hafa sverð sér við hlið þegar þeir voru að byggja upp múrana. Þeir voru ekki reistir á einum degi, heldur með blóði, svita og tárum á 52 dögum. Nehemía byrjaði að gráta, fasta, biðja og harma dögum saman þegar hann frétti að múrar Jerúsalem væru niðurbrotnir og borgarhliðin í eldi brennd. Hann gerði iðrun fyrir syndir Ísraelsmanna og minnti Guð á fyrirheitin. En það mun alltaf vera mótstaða við endurreisn múra Drottins og það stóð ekki á óvinum sem vildu stoppa verkið. Óvinirnir notuðu þau rök að þeir væru í uppreisn gegn konungi og óvinirnir leituðust við að koma Ísraelsmönnum á óvart til að strádrepa þá. En munum að þegar Drottinn sér okkar viðleitni til að endurreisa múrana, þá mun hann berjast með okkur. En undir leiðsögn Nehemía og Esra voru þeir endurreistir og borgarhliðin 12 sett í. Talan tólf er mynd uppá stjórnun og sjáum við oft talað um töluna 12 í ritningum, eins og 12 lærisveinar, 12 ættkvíslir Ísraelsmanna, 12 steinar í Jórdan, 12 brauð á skoðunarborðinu, 12 undirstöðusteinar í borgarmúrunum og 12 postular. Esra var ljúfur prestur og bænamaður sem grét yfir syndum lýðsins, en Nehemía var atorkumaður sem keyrði áfram uppbyggingu múra Jerúsalem með harði hendi. Nehemía réðst gegn synd Ísraelsmanna með því að berja þá og hárreita. Guð notar ólíka menn til að vinna í einingu að byggja upp Guðsríkið. Þegar múrarnir voru vígðir, þá var orði Guðs lyft upp. Esra las upp úr lögmálinu og lýðurinn grét við að heyra orð Guðs. Lýðurinn safnaðist fyrir framan Vatnshliðið sem er mynd uppá hreinsun. Eftir að hafa heyrt orð Drottins var haldinn iðrunardagur. Iðrun er lykill að endurreisn múra sannleikans. Í opinberun Jóhannesar 21:9-27. er talað um Jerúsalem og hliðin 12, þar sem hvert hlið er úr einni perlu. Til þess að perla myndist þarf skeldýrið að þjást, það er eitthvað ertandi sem fer inní skelina og skeldýrið grætum vökva sem umlykur kornið. Það er lag ofan á lag og að lokum hefur myndast hin dýrmæta og fallega perla. Eins er með uppbyggingu í lífum okkar og vöxt í Guði. Múrar gefa vörn gegn óvinum og afmarka borgina, eins er í hinum andlega þegar við byggjum upp múra sannleikans umhverfis hjarta okkar, þá eigum við vörn gegn Satan. Þessir múrar verða aðeins reistir fyrir orð og anda Drottins í gegnum iðrun, krossfestingu á holdinu og lofgjörð til nafns Drottins. Opinberunarbókin.21:2 Múrar sannleikans eru okkar brúðarklæði sem við verðum að fullgera áður en Drottinn kemur að sækja brúði sína. Við viljum vera hin fullkomna brúður sem hefur gert sig tilbúin og íklæðst hinu dýra brúðarlíni. Vökum og biðjum því dagarnir styttast, brátt kemur brúðgumi okkar að sækja okkur. Hann kemur til að sækja hina dýrmætu brúði sína sem vill algera stjórnun Drottins inní líf sitt og er íklædd dýrð. |