NÁÐ GUÐS

Það sem allir eru í raun að leita af er náð. Náðin gefur okkur eitthvað sem við eigum ekki skilið. Náðin fyrirgefur allt og kemur stöðugt með nýja hluti inní líf okkar.

Náð í Biblíunni þýðir “Guðleg áhrif á hjartað og endurspeglun þess í lífinu með þakklæti.” Virk náð í lífum okkar nær inní innstu veru okkar eða hjarta okkar. Síðan brýst hún út með mismunandi hætti, sumir gráta við þessa snertingu Guðs. Aðrir hlægja, sumir taka á sprett, en aðrir hrópa eða hoppa. En þegar náðin nær tökum á hjarta okkar langar okkur öllum til að gera eitthvað fyrir Drottinn.

Við sjáum hve náðin er mikilvæg því Páll postuli notaði í upphafi og enda bréfa sinna kveðu sem þessa; “Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.” Pétur og Jóhannes notuðu það líka í kveðjum sínum. Síðasta vers Biblíunnar er “Náðin Drottins Jesú sé með öllum.”

Vanþakklæti er stærsta vandamálið í lífum okkar, við teljum okkur eiga eitthvað betra skilið. Allar syndir eiga uppruna í vanþakklæti. Þakklæti mun klæða okkur brúðarlíninu og hrærir hendi Guðs til að opna dyr. Þegar náðin og blóð Drottins verka í okkur fyllumst við þakklæti og lofgjörð, þá eigum við auðvelt með að biðja Drottinn um blessun eða nýja náð.

Við eigum að vera þakklát fyrir allt líf, eins og Jesús er þakklátur fyrir allt líf. Ekki fyrirlíta hið smáa sem aðrir eiga eða það smáa sem Guð gefur okkur. Því þakklæti færir okkur nær markinu sem er að verða brúður Drottins og ríkja með Honum.

Matteusarguðspjall 12:20.
Brákaðan reyr brýtur hann ekki, og rjúkandi hörkveik mun hann ekki slökkva, uns hann hefur leitt réttinn til sigurs.

Náð Guð er ný á hverjum degi og hún þrýtur ekki. Við getum gengið með djörfung að hásæti náðarinnar og fengið orð frá Guði sem gefur okkur kraft til að halda áfram göngunni að hinu háleita marki.

Harmljóðin 3:22-23.

Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín!

Hér kemur saga af föður sem vildi fyrirgefa syni sínum. Sonur hans hafði hlaupist af heiman í Madríd á Spáni. Faðirinn setti auglýsingu í El Liberal dagblaðið svohljóðandi: Paco hittu mig á hótel Montana á þriðjudegi kl. 12:00 , allt er fyrirgefið. Paco er vinsælt nafn á Spáni og þegar faðirinn fer á hótelið á settum tíma bíða um átta hundruð ungir drengir eftir föður sínum þar.

Þessi stutta saga sýnir okkur berlega hve heitt við þráum náðina eða fyrirgefingu.

Síðasti hluturinn í tjaldbúðinni er náðarstóllinn eða miskunnarstóllinn sem er í hinu allra heilagasta. Frá náðarstólnum talaði Guð til Ísraelsmanna og það er eins í dag. Þegar við meðtökum náð Guð með þakklæti, þá heyrum við blíða röddu Guðs tala inní anda okkur og gefa okkur lykilinn að því hvernig við eigum að komast nær Honum.

Hebreabréfið 4:16
Göngum því með djörfung að hásæti náðarinnar, til þess að vér öðlumst miskunn og hljótum náð til hjálpar á hagkvæmum tíma.

Davíð syndgaði meira en Sál og drýgði stærri syndir. Samt féll Sál í ónáð hjá Guði og missti konungdóm sinn í Ísrael og líf sitt. Munurinn var að Davíð kunni að gera iðrun. Við þurfum að lifa í fyrirgefningunni eða náð Guðs til að komast á leiðarenda.

Náð Guðs sé með yður öllum!

 « til baka