Nærvera Guðs Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana. Mark. 14:9. Ertu alltaf í huga Drottins? Jesús sagði að þessi kona sem hafði brotið sinn alabastursbuðk til að smyrja Hann fyrir greftrun og hennar verður minnst hvar sem fagnaðarerindið er predikað. Með öðrum orðum, hún mun alltaf vera í huga Drottins. Viljum við heimsókn frá Guði eða viljum við vera endalaust “mjólkur börn” í bólstruðum kirkjubekkjum? Guð opinberaði á Sínaí fjalli að Hann vildi byrja að vinna í fólkinu beint og persónulega. Þetta var tími umskipta, tímaskeið þar sem Drottinn var að segja, “Allt í lagi, það er tími til að fullornast eða vaxa. Ég vil tala við ykkur beint héðan í frá alla þjóðina eins og heilaga presta. Hann sagði með öðrum orðum: “Helgið ykkur og stígið andlegt skref nær mér.” Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Hreinsið hendur yðar, þér syndarar, og gjörið hjörtun flekklaus, þér tvílyndu. Jakobsbréf 4:8. “...Fólkið stóð afar fjarri, og Móses færði sig nær” ...Einn hljóp nær; aðrir hlupu burt! (II. Mós. 20:21.) Þegar nærvera Guðs opinberaðist með þrumum, eldingum, skýi og lúðurþyt kom ótti yfir Ísraelsmenn við dauðann. En til að nærvera Guðs opinberist þarf eitthvað að deyja, við þurfum að sleppa einhverju. Ekkert er þess virði að halda svo fast í að þú getir ekki haldið í Hann. Móses skildi það að þótt hann væri í eyðimörkinni, var betra að vera þar með nærveru Guðs heldur en í landi allsnægta án nærveru Hans. Móse sagði við hann: Fari auglit þitt eigi með, þá lát oss eigi fara héðan. II. Mós. 33:15. Alltof lengi höfum við aðeins leyft Heilögu Anda að taka yfir upp að ákveðnu marki. Í grundvallaratriðum, ef það fer út fyrir okkar þæginda mörk eða aðeins framyfir okkar stjórnun, þá tökum við aftur í taumana (Biblían kallar það að “slökkva Andann” í fyrsta Þessaloníkubréfi 5:19). Við stoppum við fortjaldið í tjaldbúðinni í stað þess að fara alla leið inni hið allra helgasta þar sem nærvera Hans opinberast í dýrð. Engin sönn vakning á sér stað einfaldlega vegna þess að fólkið leitaði vakningar. Þær voru fæddar fram þegar fólkið leitaði Hans. Drottinn er bundinn við sitt orð og þegar við leitum Hans í iðrun, bæn og auðmýkt, þá dregst Hann að okkur eins og segull að stáli. Þetta er hvatning fyrir okkur að taka andleg skref uppá fjall Guðs inní nærveru Hans og umbreytast frá dýrð til dýrðar. |