Orð fyrir árið 2009 Talan níu er fyrir opinberun heilags anda, uppskeru, ávöxt, andlega fullkomnun og hvíld. Við erum að genginn inn í árið 5769 samkvæmt Hebresku tímatali og endatalan og þversumman er níu. En bókstafurinn tet í hebresku táknar töluna níu og þýðir meðal annars höggormur, hjól, getnaður, meðganga, kviður, fullkomnun, niðurstaða, nýr vínbelgur, sáttmáli, boðberi góðra frétta, nýtt sæði, tenging, snúa saman og umkringja. 2009 er ár eldsins, þar sem heilagur Andi verður í aðal hlutverki. Fyrst munum við sjá meiri úthellingu heilags Anda en áður og Hann mun opinbera sig með gjöfum sínum með sterkara hætti en áður. Fleiri munu ganga fram í gjöfum heilags Anda og það mun verða sérstök náð sem mun leysast fram meðal hinna trúuðu til að nota gjafirnar. 1. Korintubréf 12:7-10 Hér er talað um 9 náðargjafir eða opinberunargjafir heilags Anda, en þær eru: Með því að leyfa eldi heilags Anda að starfa í okkur og með því að lifa í Andanum munum við sjá níu ávexti andans spretta fram, sem eru taldir upp í Galatabréfinu 5:22 og eru: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi. 2009 er árið sem sumir munu fara úr forgarðinum inn í hið heilaga og þeir sem eru í hinu heilaga munu komast inn í hið allra heilagasta, þ.e. inn í nærveru föðurins. Þetta mun verða ár fyrir lofgjörð til nafnsins og opna nýjar víddir fyrir marga til að koma inn í nærveru Drottins í hinu allra heilagasta. Þar sem brúðurinn og brúðguminn innsigla nýjan sáttmála og bindast kærleiksböndum. Það er tími til að stíga inn í lofgjörð Davíðs og yfirgefa hús Sáls. Drottinn mun setja mikla pressu á lýð sinn í húsi Sáls. Það munu margir verða þrýst inn í hinn leynda stað í nærveru Guðs. Þetta er árið sem Drottinn mun opinbera tjaldbúð Davíðs á mikilfenglegri hátt en áður fyrir lýð sínum, þ. e. lofgjörð, bæn og spámannlegt flæði sem hrærir himin og jörð. Hús Sáls táknar: Þægindi, hefðir, vana, öfund, treysta á eigin styrk, leti, málamiðlun, án nærveru og vitjunar Guðs. En það mun verða átök hold og anda, sumir munu falla frá og hverfa frá blessun Guðs. Einnig mun verða opinberun á hinum holdlegu kristnu sem eru í líkama Krists. Heilagur Andi mun opinbera meira af Guðsríkinu og til að meðtaka eldinn og hið nýja vín þurfum við nýjan vínbelg. Hið gamla kerfi vanans gengur ekki ef við ætlum að halda nýja víninu. Við þurfum hina fimmföldu þjónustu til að rísa upp sem eru postular, spámenn, trúboðar, hirðar og kennarar. Nú er tími til að velja hið góða, fagra og fullkomna. Sterkari skil verða í Guðsríkinu og Drottinn mun pressa á lýð sinn til að velja á milli hins góða og illa. Það mun verða dómur og leiðrétting í ríki Guðs. Við erum að ganga inn í ár blessunar og yfirflæði heilags anda. Þetta er tími til að láta Guð blása hugrekki í okkur til gleyma því liðna, veikleikum okkar og mistökum fortíðar og seilast eftir hinni fullkomnu blessun sem gefur okkur kraft til að gefa hinu hrjáðu og undirokaða af djöflinum gleði boðskap. Djörfungin sem heilagur Andi gefur okkur mun gefa okkur kraft til að brjóta ok óvinarins. Þetta er ár fyrir uppskeru á akri Drottins. Við þurfum að gera okkur reiðubúinn fyrir uppskeru sem aldrei sem áður í þjóð okkar. Andlegar fæðingar munu verða óvenjulegar og við munum sjá fólk leita Guðs sem við héldum að væri langt frá Guði. Gríðarlegur þrýstingur heilags anda mun verða á okkur til að framfylgja orðinu og hlýða anda Guðs. Guð mun umlykja okkur með enn meiri nærveru sinni á þessu ári. Margir munu sjá uppskeru þess sem þeir hafa sáð í gegnum tíðina, bæði hið góða og illa mun líta dagsins ljós. Drottinn mun nota þrýsting og krísur til að koma sínum vilja í verk meðal hinna heilögu. Nú er tími til að velja á hvorri hlið við ætlum að vera. Sbr. I. Kon. 18:21-40. þegar Elía sagði á Karmel fjalli við lýð Drottins: “Hversu lengi ætlið þér að haltra til beggja hliða?” Þar skoraði Elía á Baals spámenn og Aséruspámönnum að leggja fórn á altari. “Sá Guð sem svarar með eldi er hinn sanni Guð.” Við verum að taka gallharða ákvörðun með Guði, það er ekki hægt að umbera anda Jesebel lengur. Jesebel stendur fyrir skurðgoðadýrkun, hórdómi, morðanda, þjófnaði og rangri meðhöndlun með fólk. Hið náttúrlega fyrirmyndar hið andlega og eins og atburðir á liðnu ári með íslenska efnahagshrunsinu. Á efnahagsins hefur þornað upp og valdið vonbrigðum, skömm og ringulreið. Það munu margir rísa upp sem andlegir Elía og koma gegn anda Jesebel í kirkjunni. Í I Kon. 17 kafla segir frá Elía sem var við lækinn Krít og lækurinn þornaði upp, en þýðingin á að þorna upp er vonbrigði, skömm og ringulreið. En Guð sagði honum að fara til Sarefta sem þýðir að fæga, hreinsun, betrumbót, lagfæring, siðfágun, fágun, fínleiki, nákvæmni, bræða saman, snurfusa, reyna, gera ekta, í steypumóti gullsmiðsins og afsteypa. Það er eins og það sé ekkert til, en nú er tími til að treysta á Guð og horfa á hann opna uppsprettur sínar og gefa börnum sínum alsnægtir í andanum sem og í hinum jarðnesku hlutum. Mjölskjólan skal eigi verða tóm og viðsmjörið í krúsinni ekki þrjóta. Það mun verða okkar hlutskipti ef við erum tilbúin að fara til Sarefta, en Drottinn mun fullmóta og reyna okkur, þar til við verður alveg ekta í gegn. Einnig munum við sjá fólk í anda Elía blása lífi í ungu kynslóðina sem hefur orðið fyrir áhrifum af smurningu dauðans. Förum upp í loftstofuna (á bænastaðinn) og biðjum unga fólkið inn í fullkominn vilja Guðs. Þetta er tími til að reisa bænina á hærri stað í Guðríkinu og biðja inn hinna miklu uppskeru sem Guð vill gefa Íslandi. |