Sælir eru þeir, sem hungra Þegar Móses bað Drottinn að sýna sér dýrð Hans, aðvaraði Drottinn hann að enginn maður gæti séð Guð og haldið lífi. Jafnvel í hinum nýja sáttmála er þessu háttað þannig líka. Aðeins dauður maður getur séð Guð. Það eru tengsl á milli dýrðar Hans og dauða okkar. Ég er að tala um það sem samsvarar dauða í Nýja testamentinu, sem er að vera í iðrun, auðmýkt og brotinn frammi fyrir Guði. Alltof oft gefum við Guðs orði aðeins varaþjónustu. Við segjum sannleikann en við framgöngum ekki í sannleikanum. Hvað ef Guð meinar það sem Hann segir? Hvað ef það er satt að aðeins dauðir menn geta séð auglit Hans? Hefur þú einhvern tíman séð hungrað fólk? Ég meina raunverulega hungrað fólk. Ef þú færir til Afríku eða ferðast til landa sem þjást af hungursneyð, þú myndir sjá hvað gerist ef poki af hrísgrjónum eru færð raunverulega hungruðu fólki. Þau myndu koma úr öllum áttum á fáum sekúndum. ... Biblían segir um himnaríkið, “...Ofríkismenn taka það með valdi” (Matt. 11:12). Fyrir einhverja ástæðu hljómar þetta ekki eins og við, er það? Við erum svo “kirkjuleg” það að við höfum okkar eigin form “pólitísk nákvæmni” og kurteisar siðareglur. Þar sem við viljum ekki vera of róttæk, setjum við stólana upp í fallegri línu og væntum þess að samkoma okkar sé eins öguð og línuleg samkvæmt okkar mannlegum reglum. Við þurfum að vera aðframkomin að hungri eftir Honum svo að við gleymum bókstaflega mannasiðum! ...Allir sem ég get hugsað um í Biblíunni sem “gleymdu mannasiðum” fengu eitthvað frá Honum. Ég er ekki að tala um ókurteisi í formi ruddamennsku; ég er að tala um ókurteisi fædd út úr örvæntingu! Faðir, Ég bið að andi andlegs ofbeldis muni grípa hjörtu okkar, það að þú munir snúa okkur til lofgjörðarhermennsku. Ég bið að við stoppum ekki fyrr en við höfum brotist í gegn að hásæti Drottins, þar til að múrar eru brotnir og himininn er opinn. Þjóðin þarfnast þín, Drottinn. Við þörfnumst þín. Við erum leið á því að seðja okkur á molum. Sendu okkur þitt heita brauð frá himni, sendu okkur manna fullt af nærveru þinni... Það skiptir ekki máli hvað okkur vantar eða finnst vanta í okkar líf – það sem okkur vantar raunverulega er Hann. Og leiðin til að ná Honum er að verða hungraður. Ég bið að Guð gefi þér hlutdeild í hungri vegna þess að það mun gera þig hæfan fyrir fyrirheit allsnægta Guðs. Jesús sagði: “Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því þeir munu saddir verða.” |