ÞITT FÓLK ER MITT FÓLK
Þitt fólk er mitt fólk er ný þýdd bók skrifuð af Don Finto og gefin út af Bænahúsinu

Umfjöllun um það hvernig Ísrael, Gyðingar og kristin kirkja eiga eftir að koma saman á síðustu tímum.

Alltof margir telja kristindóminn hafa komið í stað gyðingdóms og að Ísrael standi nú utan áætlunar Guðs.
Bókin Þitt fólk er mitt fólk opinberar áætlun Guðs fyrir sáttmálafólk hans á þessum tímum – og hvaða áhrif þessi opinberun hefur á kirkjuna. Ólíkt því sem Rut gerði í Gamla testamentinu, höfum við mörg hver snúið baki við ættingjum Messíasar og berum sekt aldanna fyrir ofsóknir gegn þeim.

Ísrael er enn og aftur miðpunkturinn í sögu heimsins og bænir okkar fyrir Landinu og fólki þess eru nauðsynlegar. Gerum við sama sáttmálaheit við Ísrael og Rut gerði við Naomí? Það breytir kirkju okkar ef við gerum það.


  

Yeshua (Jesús) talaði um mörg tákn sem myndu rætast fyrir endatímana. Eitt þessara tákna er einstakt fyrir okkar tíma; Ísraelsríki hefur verið stofnað og Jerúsalem er aftur komin undir stjórn Ísraelsþjóðar.

Árið 1967 var áætlað að það væru um 2000 Gyðingar sem tryðu á Yeshua og það voru engir gyðinglegir messíanskir söfnuðir í heiminum. En umskipti urðu eftir sex daga stríðið þegar Gyðingar tóku yfir Jerúsalem. Í dag eru fleiri hundruð þúsundir Gyðinga sem játa trú á Yeshua og gyðinglegir messíanskir söfnuðir skipta hundruðum. Frá því á fyrstu öld hefur ekki nokkur kynslóð séð svona marga Gyðinga í öllum heimshlutum komast til trúar á Yeshua.

Verð bókar er 3.990 kr.

Hægt að biðja um eintak með því að senda mail á kolbeinn@vonin.ws og á næstu dögum kemur hún í bókabúðir.Þitt fólk er mitt fólk er ný þýdd bók skrifuð af Don Finto og gefin út af Bænahúsinu.


Orð fyrir árið 2009.

Talan níu er fyrir opinberun heilags anda, uppskeru, ávöxt, andlega fullkomnun og hvíld. Við erum að genginn inn í árið 5769 samkvæmt Hebresku tímatali og endatalan og þversumman er níu. En bókstafurinn tet í hebresku táknar töluna níu og þýðir meðal annars höggormur, hjól, getnaður, meðganga, kviður, fullkomnun, niðurstaða, nýr vínbelgur, sáttmáli, boðberi góðra frétta, nýtt sæði, tenging, snúa saman og umkringja.

2009 er ár eldsins, þar sem heilagur Andi verður í aðal hlutverki. Fyrst munum við sjá meiri úthellingu heilags Anda en áður og Hann mun opinbera sig með gjöfum sínum með sterkara hætti en áður. Fleiri munu ganga fram í gjöfum heilags Anda og það mun verða sérstök náð sem mun leysast fram meðal hinna trúuðu til að nota gjafirnar.

1. Korintubréf 12:7-10
Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda. Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal.

Lesa meira»


10 daga, samkirkjuleg bæna-, lofgjörðar- og föstu átak.

Dagana 4 til 14 nóvember verður samkirkjuleg 10 daga bæna, lofgjörðar og föstu átak fyrir landinu okkar undir yfirskriftinni “Komi þitt ríki svo á jörðu sem á himni”. Það verður bæn og lofgjörð dag og nótt, þar sem tveggja tíma vaktir verða skipulagðar í einu. Þessi bæna- og lofgjörðar tími mun byrja kl. 20:00 þann 4. nóvember og enda kl. 20:00 þann 14. nóvember 2008 í húsnæði Kærleikans Faxafeni 8.

Dagana 7 til 9 nóv. verður mót og gestur mótsins er Kirk Bennett sem er stofnandi Zadok House of prayer í Charlotte í USA. Sjá dagskrá mótsins í viðhengi, en laugardaginn 8. nóvember kl. 10-12 verður sérstök kennsla fyrir leiðtoga (forstöðufólk, bænaleiðtoga og aðra leiðtoga innan safnaðanna).

Bænahúsið og Kærleikurinn hafa haft frumkvæðið af þessum atburði, en hugmyndin er að allir söfnuðir komi að þessu í einingu Andans. Nú er tími Guðs til að endurreisa alla hluti og þær þrengingar sem ganga yfir okkar þjóð munu verða til blessunar ef við lyftum upp nafni Drottins og hrópum niður áætlun Guðs fyrir Ísland. Því er haft samband við alla söfnuði til að taka þátt í föstunni og koma til bæna og lofgjörðar í húsnæði Kærleikans Faxafeni 8 dagana 4 til 14 nóv.

Kærleikskveðja,
Kolbeinn Sigurðsson
BÆNAHÚSIÐ


Auglýsing - dagskrá



Trúboðsferð til Rúanda og Kongó í Ágúst 2008


Ég, Kolbeinn Sigurðsson og konan mín Guðrún Erla fórum saman þann 6. ágúst til Kigali í Rúanda og þótt að ferðin taki rúman sólarhring gengur allt upp á ferðalaginu. Samt voru ákveðin tákn sem Guð gaf okkur um að framundan væri andleg barátta um Mulenge í Kongó. Markmiðið með þessari ferð var aðallega að halda endurreisnarmót í Minembwe sem er í Mulenge héraði í austur Kongó. Þetta er svæði sem er án alls nútímaþæginda, eins og rafmagn, bílar, heilsugæsla eða annað sem við í vestrænni menningu lítum á sem sjálfssagðan hlut. Á Íslandi hafði safnast nóg fé til að taka flugvél á leigu sem gæti tekið okkur til Mulenge, því það liggur enginn vegur þangað.

Lesa meira»

Endurreisn Mulenge

Endurreisnarmót í Minembwe í Austur Kongó. Minembwe er eitt af 20 þorpum í Mulenge héraði sem er í Austur Kongó. Á Mulenge búa um 250.000 manns sem eiga rætur í Tútsa ættbálk frá Rúanda og Búrúndí. Þegar landamæri þessara landa lokuðust varð þessi hirðingahópur innlyksa í Kongó. Þeir hafa verið ofsóttir, verið neitað um ríkisborgararéttindi og lent á milli í stríðinu sem hefur geisað síðustu 10 ár í Austur Kongó. Þeir hafa ekki rafmagn, vegi, samskiptatæki eða aðra tækni.

Við viljum gefa þér tækifæri að vera með í verkinu og sá fjárhagslega í þetta verkefni. Hvert sáðkorn fjármuna skiptir máli fyrir Mulenge hérað í Kongó og getur skipt sköpun fyrir framtíð íbúa landsins.

Styrktarreikningur fyrir trúboð Vonarinnar:
Banki: 135-05-071115
Kt. 460406-1370

Lesa meira»


Varðmenn á múrum sannleikans

Kolbeinn Sigurðsson er búinn að gefa út bók sem heitir; Varðmenn á múrum sannleikans. Þetta er mögnuð og kjarnyrt bók sem fæddist í Afríku. Hún er til í Jötunni, Glætunni og Bókabúð Vegarins.  Einnig er hægt að senda tölvupóst á kolbeinn@vonin.ws og fá hana senda í pósti.


Bænahúsið Miðvikudaginn 30. apríl kl. 20:00

Bæn, spádómlegt flæði og boðun orðsins.
Martijn van Tilborgh frá Flórída mun predika orð Guðs.
Martijn van Tilborgh er forstjóri fyrir Transform Africa 360°.

www.transformafrica360.com
Áhersla hans hefur verið hjálparstarf, trúboð, að efla hina fimmföldu þjónustu og að starfa í spámannlegu flæði.
Bænahúsið Smiðjuvegi 4b, Kópvogi í húsnæði Ekron bak við Bónus.

Allir eru hjartanlega velkomnir!



Masters skólinn frá Huntsville Alabama í heimsókn

Masters skólinn frá Huntsville Alabama mun vera í heimsókn hjá Bænahúsinu, Miðvikudaginn 16. apríl kl. 20.
www.huntsvillemasterscommission.com
Þau munu sjá um lofgjörð, bæn, predikun orðsins og annað sem Guð leggur þeim á hjarta.
Bænahúsið er á Smiðjuvegi 4b, 200 Kópavogur, húsnæði Ekron bak við Bónus.

Allir eru hjartanlega velkomnir!



Sáttargjörð

Leynivopn Guðs

"Hann skóp þau karl og konu" 1.Mósebók 5:2a

Guð er að endurreisa í dag. Við sjáum sáttargjörð milli kynþátta,
menningarheima og kirkjudeilda.
Grundvöllurinn að endurreisninni er sáttargjörð milli kynjanna, sáttargjörð karls og konu.
Ekki aðeins innan hjónabandsins heldur líka innan líkama Krists, kirkjunnar


Sjá nánar á www.aglow.is
 
Laugardaginn 29. mars verða Bænahúsið og Aglow á Íslandi með námskeið um sáttargjörð.

Námskeiðið verður haldið í Safnaðarheimili Grensáskirkju og verður frá klukkan 10-16 og kostar 3.500,-
Innifalið í því verði er léttur hádegisverður og námskeiðsgögn.

Á námskeiðinu verður farið yfir ýmis mál
sem snerta okkur í daglega lífinu....

- Endurreisn áforma Guðs í garðinum...
- Ekki gott fyrir manninn að vera
   einsamall...
- Sköpuð í Hans mynd...
- Staða konunnar - á heimili - í kirkjunni...
- Undirgefni...
- Eiga konur að þegja á
  safnaðarsamkomum?
- Hjálpin sem Guð sendi...
- Almenn samskipti...
- Hlutskipti kirkjunnar...


Nauðsynlegt er að skrá sig á netfangið landsstjornaglow@gmail.com
eða í gsm: 699-1986 (Ella)

Ekki missa af þessu tækifæri til að læra og uppfræðast um það sem Guð er að gera í dag.

Kennarar verða Edda Matthíasdóttir Swan, formaður Aglow á Íslandi og hjónin Kolbeinn Sigurðsson og Guðrún Erla Gunnarsdóttir

Hann á að vera í himninum allt til þess tíma, þegar Guð endurreisir alla hluti, eins og hann hefur sagt fyrir munn sinna heilögu spámanna frá alda öðli. Postulasagan 3:21

Trúboðsferð til Rúanda og Kongó í janúar 2008
Við Árni Þórðarson og ég Kolbeinn Sigurðsson héldu snemma morguns þann 12. janúar 2008 í trúboðsferð til Afríku.

Þegar við komum til London, kom í ljós að miðinn hjá Árna hafði verið bakfærður og peningarnir endurgreiddir inn á kortið. Þetta hafði umboðsskrifstofan gert án þess að senda tölvupóst og láta vita af því. En eftir mikið stress og náðist að kaupa nýja miða fyrir Árna og merkilegt að fargjaldið var aðeins ódýrara en upphaflega hafði verið keypt á netinu. Þegar það var búið að redda þessu þurfti ég að hlaupa til að ná minni vél til Kenýa.
 

Myndir Rúanada | Congo
Við Árni komum til Nairobí í Kenýa með sitthvorri vélinni snemma morguns þann 13. janúar. Við náðum að breytta miðanum mínum til að við yrðum samferða til Kigali í Rúanda. Þegar við komum til Kigali var farið í gegnum venjulega vegabréfsáritun, en það kostaði okkur 60 $ hvorn. Alfons og María hjá Zion Temple tóku á móti okkur. Þau fóru með okkur á gistihús Amanda sem var ekki nógu hreint og orðið frekar lúið, en sem trúboði er maður vanur ýmsu. Það var skipt um föt og farið beint á samkomu hjá Zion Temple. Við heilsuðum upp á söfnuðinn sem telur eitthvað á milli 12 til 15 þúsund meðlimi. Postulinn Paul Gitwaza predikaði um bænina á þessari samkomu sem var mjög blessað og gott orð. Eftir að hafa fengið sér næringu eftir þessa stund, lögðum við okkur í hálftíma. Nú vorum við nokkuð þreyttir því við vorum búnir að sofa mjög lítið í tvo sólarhringa. Á seinni samkomunni á þessum sunnudegi var ég beðin að predika. Drottinn var búinn að tala við mig um orð til að gefa í Afríku. Það var orð um sáttmálsörk Guðs, nærveru Hans og dýrð Hans. Eftir predikun frelsuðust 13 manns og lækning var á eyrnarverkjum, heyrnarleysi og verkir víðsvegar hjá fólki hurfu.

Lesa meira»


Námskeið 9. febrúar
Hvað segir tímaklukka Guðs?
Þekkir þú heimsmálin út frá Biblíulegu sjónarmiði?

Laugardaginn 9. febrúar er þér boðið að slást í hóp þeirra sem skilja köllun Guðs og fyrirheit með þjóð sína og hafa skipað sér í skarðið.

Bænahúsið og Aglow sameinast með kennslu um málefni Íslam og Ísrael.

Námskeiðið verður haldið í Safnaðarheimili Grensáskirkju og verður frá klukkan 10-16 og kostar 3.500,-
Innifalið í því verði er léttur hádegisverður og námskeiðsgögn.

Nauðsynlegt er að skrá sig á netfangið aglowisland@gmail.com
eða í gsm: 699-1986

Ekki láta þetta tækifæri framhjá þér fara

 

Afríku trúboðsferð Vonarinnar í janúar 2008

Fyrirhuguð er trúboðsferð til Afríku í janúar 2008. Á vegum Vonarinnar munu fara Kolbeinn Sigurðsson, Helgi Georgsson og Árni Þórðarson. Farið verður utan 12. janúar og komið heim 29. janúar. Ferðinni verður heitið til Rúanda og Kongó. Þar verða haldnar samkomur sem orði Guðs verður miðlað, beðið fyrir fólki til frelsis og beðið fyrir lækningum. Sérstaklega verður farið inn í frumstæðar aðstæður í Kongó, en þar hefur verið mikil neyð lengi. Óöld hefur ríkt yfir tíu ár á þessum slóðum í Kongó og um fjórar milljónir manna hafa látið lífið í skærum. Við trúum á endurreisn einstaklinga, fyrirgefningarkraft, stórkostlega blessun hins himneska föðurs og mikil lækningasmurning verði til staðar í þessari ferð. Trúboðarnir þurfa að lifa án nútíma þæginda, sem við höfum talið sjálfsagt mál að sé til staðar hér á Íslandi. En það er trú okkar að sá blessun í Afríku, muni líka gefa uppskeru blessunar á Íslandi. Trúsystkini eru beðin að biðja fyrir þessari ferð, að Guð styrki og verndi trúboðana.


Bænahúsið var með námskeið helgina 2 – 4 nóv. 2007

“Bænahús dag og nótt á Íslandi”
Kennarar voru: Greg Burnett frá ZHOP Bænahúsinu í Charlotte, USA og Ian Nicholson forstöðumaður frá Guildford, Englandi sem hefur tekið þátt í því að bænahús hafa verið stofnuð víða í Evrópu. Einnig kenndi Jake Farrell lofgjörðarleiðtogi eina kennslustund.
Lesa meira»



Bæn og fasta fyrir Íslandi
Fastað verður frá 7. nóvember kl. 18:00 til 10. nóvember kl. 18:00
Vegna þess ætlum við að koma saman á bænastund föstudaginn 9. nóvember kl. 20:00 í húsakynnum Ekrons á Smiðjuvegi 4b, Kópavogi

Nú er tími til að fasta og sjá Ísland vinnast fyrir Krist
Beðið verður sérstaklega fyrir Bænagöngunni 10. nóvember 2007

www.baenaganga.com


Námskeiðið “Bænahús dag og nótt á Íslandi”
helgina 2 – 4 nóv. 2007.


Kennarar:
Greg Burnett frá ZHOP Bænahúsinu í Charlotte, Carolina, USA og Ian Nicholson forstöðumaður frá Guildford, Englandi og hefur átt hlut í því að bænahús hafa verið stofnuð víða í Evrópu.

Námskeiðið verður í safnaðarheimili Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66, Reykjavík
og A. Hansen, Vesturgötu 4, Hafnarfirði.

Dagskrá:
Föstudag kl. 20:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju
Laugardag kl. 14:00 til 17:00 í A. Hansen, Hafnarfirði
Sunnudag kl. 14:00 til 17:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju
Sunnudag kl. 20:00 í safnaðarheimili Grensáskirkju

Verð fyrir námskeið
2.500 kr. Fyrir einstakling og 4.000 kr. Fyrir hjón. Einstakt skipti 1.000 kr.

Skráning er í síma 699 1986 (Ella) eða með því að senda póst á kolbeinn@vonin.ws


HANN ELSKAR OKKUR
Það er sumt fólk sem enginn vill hafa með að gera og það fólk fær höfnun. Þetta veldur særindum og oft djúpu sári. Það getur verið maki þinn sem hafnar þér, faðir þinn, vinur, móðir, leiðtogi eða einhver annar.
Lesa meira»

Jessabel
Opinberun Jóh. 2:20.

En það hef ég á móti þér, að þú líður Jessabel, konuna, sem segir sjálfa sig vera spákonu og kennir þjónum mínum og afvegaleiðir þá til að drýgja hór og eta kjöt helgað skurðgoðum.
Lesa meira»


Múrar Sannleikans
Áður en Jesús kemur aftur mun hann endurreisa kirkju sína fullkomlega. Við lifum á síðustu tímum og við erum síðasta kynslóðin. Hin síðari dýrð kirkjunnar verður meiri en hin fyrri. Á þriðja degi í brúðkaupinu í Kana gjörði Jesús kraftaverk, hann breytti vatni í vín og menn sögðu að það væri óvanalegt að besta vínið kæmi síðast. En við erum á þriðja degi, þ. e. þriðja árþúsundið í náðartímabilinu og við þurfum að útbúa nýjan vínbelg í andanum fyrir hið nýja vín sem Drottinn ætlar að útdeila með börnum sínum. 21 öld verður eins og fyrsta öld nema bara 7 sinnum meiri dýrð sjá Jesaja 30:26 um opinberun síðustu daga. Menn og konur munu rísa upp á síðustu dögum í krafti Elía, og Jóhannes skírara til að undirbúa lýð Drottins fyrir komu hans sjá Malakí 4:5. Í dag er ekki nóg að berjast einn heldur þurfum við að berjast í einingu gegn afli myrkursins. Andi antikrists er að magnast með hverju árinu sem líður.

Lesa meira»

Spádómur um Ísland
Hér er spádómur um Ísland, Þar sem talað er um að hvirfill frá Guði sé yfir Ísland.  Þessi hvirfill er eins og horn sem menn notuðu áður fyrr til þess að heyra, en það virkar í báðar áttir. Við tölum við Guð, síðan þögnum við og heyrum frá Guði.
Lesa meira»

Fasta sem Guði líkar

Fasta þýðir að hylja munninn, halda sig frá fæðu, borða ekki neitt, þjá sálina (Nephesh) og harðneskja við holdið. Það var bæði fastað í gamla og nýja testamentinu. Í frumkirkjunni föstuðu margir tvisvar í viku. Og í gegnum aldirnar hafa allir sannir Guðsmenn fastað mikið. Fastan er eins og stöðugt bænahjól án orða sem hjálpar okkur að vaxa, brýtur ok, sigrar andavald, slekkur rostann í holdinu, gefur kraft í bænina og opinberar orð Guðs. Fastan var notuð þegar hætta steðjaði að þjóðinni, sorg bar að garði, setja átti menn inní embætti, til að fá lækningu, þegar menn vildu helga sig sérstaklega Guði, til að fá vernd fyrir óvinum sínum, þegar menn vildu gera iðrun og áður en menn byrjuðu þjónustu sína.

Lesa meira»

Söfnunarreikningar
Fyrir trúboð Vonarinnar -
banki: 0140-05-015597 - kennitala 200959-7799
Fyrir Bænahúsið -
banki: 0116-05-063995 - kennitala 460406-1370

Eyðimörkin
Þegar við göngum í gegnum eyðimörk eða andlegan dal, er það ekki slæmt heldur nauðsynlegt fyrir þroska og vöxt okkar í Guði.
Lesa meira»


Framúrskarandi kristinn
Orð Guðs segir okkur berlega að við eigum að vaxa andlega. Við verðum að halda áfram að pressa í áttina að markinu sem er að verða brúður Drottins. Við sjáum að Ísraelsmenn fóru frá Egyptalandi og í gegnum eyðimörkina og komu að lokum inn í fyrirheitna landið Kanaansland og þar kallaði Guð Ísraelsmenn brúði sína. Brúðurin á að vera án bletts eða hrukku, hún á að vera góð, fögur og fullkominn.
Lesa meira»

NÁÐ GUÐS
Það sem allir eru í raun að leita af er náð. Náðin gefur okkur eitthvað sem við eigum ekki skilið. Náðin fyrirgefur allt og kemur stöðugt með nýja hluti inní líf okkar. Náð í Biblíunni þýðir “Guðleg áhrif á hjartað og endurspeglun þess í lífinu með þakklæti.” Virk náð í lífum okkar nær inní innstu veru okkar eða hjarta okkar.
Lesa meira»

Nærvera Guðs
Þú getur verið fáein andleg skref frá því að eiga samfundi lífs þíns. Ef þú vilt sjá auglit Drottins, þá þarftu að fylgja Maríu að fótum Jesú. Dragðu fram þinn alabastursbuðk með dýrmætri fórnandi lofgjörð og tilbeiðslu. Þú hefur haldið aftur af fjársjóð þínum alltof lengi, en það er einn sem er verðugur þess alls. Ekki halda aftur af neinu og kom þú með djörfung að hásæti náðarinnar.
Lesa meira»

Sælir eru þeir, sem hungra
Hve langt er síðan þú sagðir, “ég ætla alla leið með Guði”? Hve langt er síðan þú lagðir allt til hliðar og hljópst að altari Guðs í iðrun til að komast inní nærveru Hans? Þegar Móses bað Drottinn að sýna sér dýrð Hans, aðvaraði Drottinn hann að enginn maður gæti séð Guð og haldið lífi. Jafnvel í hinum nýja sáttmála er þessu háttað þannig líka.
Lesa meira»