Stefna fyrir Bænahúsið

Bænahúsið er byggt á kristnum grunni og er öllum opið. Þar viljum hvetja til bænar, lofgjörðar og að spámannleg þjónusta verði virk. Beðið er fyrir einingu í líkama Krists á Íslandi og blessun fyrir Íslensku þjóðina. Einnig munum við stuðla að því að bænahópar spretti upp út um allt Ísland.

Einnig viljum við efla trúboð. Sýn okkar og von er að sjá Guðsríkið eflast og tjaldhæla þess víkka út um alla heimsbyggðina.

Við viljum sjá einstaklinga byggjast upp og stíga fram í köllun sinni til að uppfylla það verk sem Guð hefur falið þeim að gera. Því við erum öll sköpuð til góðra verka Guði til dýrðar.

Bænahúsið er starf sem hefur orð Guðs að leiðarljósi og mun leitast eftir að starfa undir handleiðslu Heilags Anda.

Jesaja 56:7
Þá mun ég leiða til míns heilaga fjalls og gleðja þá í bænahúsi mínu. Brennifórnir þeirra og sláturfórnir skulu vera mér þóknanlegar á altari mínu. Því að hús mitt skal nefnast bænahús fyrir allar þjóðir.

Bænahúsið var stofnað af hjónunum Kolbeini Sigurðssyni og Guðrúnu Erlu Gunnarsdóttur í apríl 2006.

 « til baka