Stefna fyrir Vonina trúboðsstarf Vonin er alþjóðlegt trúboðsstarf sem hefur hjarta fyrir því að boða fagnaðarerindið með kærleika Krists um allan heim. Það sem við þráum, er að vera erindrekar fagnaðarerindisins um ríki Guðs og sjá Drottinn koma með von og lækningu inn í líf margra. Trúboðið mun vinna að því að biðja með fólki til frelsis, skírn í Heilögum Anda og lækningu til anda, sálar og líkama. Vonin er starf sem hefur Biblíuna að leiðarljósi og mun stuðla að því að fullkomna kirkju Krists. Áherslan skal alltaf vera á orð Guðs og að hvetja hina Kristnu til að vaxa upp til höfuðsins sem er Kristur og vera brúður Drottins. Sýn okkar og von er að sjá Guðsríkið eflast og tjaldhæla þess víkka út um alla heimsbyggðina. Sjá einstaklinga vaxa og stíga fram í köllun sinni og þjónustu í Guðsríkinu. Leitast skal við eftir því sem Andi Guðs opnar dyr að fara á landsvæði sem trúboðar hafa ekki komið á eða ekki komið í mörg ár. Þetta starf skal byggjast á bæn, föstu og leiðsögn Heilags Anda. Matteusarguðspjall.24:14. Vonin var stofnuð af hjónunum Kolbeini Sigurðssyni og Guðrúnu Erlu Gunnarsdóttur sem hafa starfað í Krossinum frá 1983. |